„Eins og að drekka vatn“ er góður frasi sem lýsir einhverju einföldu, léttu eða fljótlegu verki. Þessi frasi á ekki við á Indlandi þar sem vatn er alls ekki sjálfsagður hlutur og reyndar er ekkert verk sem yfirhöfðu telst fljótlegt eða einfalt af hálfu heimamanna.
Á Indlandi er augljóslega ekki hægt að drekka kranavatnið til þess er það of mengað - slík athöfn væri ávísun á góða skitu í nokkrar vikur og magakrampa á Ricther-skala.
Næst þegar þið á Íslandi skrúfið frá krananum og látið renna lengi vel til þess að fá ískalt og ferskt vatn - þá skulið þið hugsa til okkar. Hér þarf að panta drykkjarvatn sem kemur í 25 lítra kútum sem er besta mál en að fá áfyllingu getur tekið á taugarnar - stundum koma gaurarnir tvisvar í viku með nýja kúta en stundum sjást þeir ekki í margar vikur. Einn kútur dugar í svona 2-3 daga. Við erum með þrjá kúta en samt sem áður eigum við til að vera vatnslaus.....þá er bara að bíða í von og óvon að vatnsdrykkjarkórinn skili sér í hús sem fer algjörlega eftir þeirra hentugleika en ekki okkar þörfum.
Baðvatnið er önnur saga, við erum með 4000 lítra tank neðanjarðar í garðinum okkar sem er fylltur af vatni tvisvar á dag, við erum 1000 lítra tank upp á þaki, við erum með elektróníska græju sem flæðir þessu vatni í tankinn upp á þaki. Til þess að fá heitt vatn þá erum við með 250 lítra tank við hliðina á 1000 lítra tankinum - vatnið flæðir frá 4000 lítra tankinum í litlum rörum upp á þak og inn í 1000 lítra tankinn og þaðan í litla tankinn sem hitar vatnið með sólarrafhlöðum og skilar svo herlegheitunum í kranana. Of flókið? Ef ein af þessum einingum virkar ekki þá er ekkert vatn. Nema hvað nú er svo heitt í veðri að það þarf ekki að hita vatnið - allt vatn er heitt nema kannski á nóttunni.
Sem sagt við drekkum sirka 60 lítra á vatni á viku og notum sirka 6000 lítra af baðvatni á viku. En þú?
Skrapp í ríkið í gær að kaupa bjór.....afgreiðslumaðurinn var glaðbeittur 14 ára drengur. Svipaða sögu má segja um apótekin.
Konni
föstudagur, 23. maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli