miðvikudagur, 28. maí 2008

Uppáhald vikunnar

Uppáhald vikunnar eru indverskir skraddarar. Þeir eru mjög góðir og efnin sem eru í boði eru mjög góð, sérlega í jakkafötum. Það var komið gat á eina uppáhaldsskyrtuna mína sem ég keypti í GK í fyrrahaust á alltof mikinn pening svo ég fór með hana og lét gera afrit á 1500 krónur íslenskar.
Við komum við í MeBaz sem er ein af betri skraddarabúðum hér á mánudaginn, konni pantaði sér tvennar skyrtur og keypti eitt bindi, ég pantaði mér dragt með buxum og pilsi ásamt einni skyrtu. Saman kostaði þetta um 14.000 rupies eða tæplega 24þúsund íslenskar. Dragt, þrennar skyrtur og bindi.
Þetta er skemmtileg athöfn, ég var með fjóra menn á tímabili í að aðstoða mig, svo fær maður auðvitað vatn, kaffi og te en ekki bjór til að hressa sig við á milli mælinga.
Ég valdi sherlock holmes efni í dragtina, svo er spurningin hvort hún verður samþykkt af CLO (chief look officer) hjá Calidris.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Þú verður að senda okkur mynd af dragtinni svo sjáum við til hvort við hleypum þér heim. ;)

Ella sagði...

Já ég verð að gera það, ég vona að hún verði snilld en sjáum til. Sherlock Ella - til þjónustu reiðubúin!
Ég kannski fæ mér eina svarta líka, svona til vara. Það er alveg hægt að rökstyðja kaup á því, þá fell ég líka vel í hóp mormónabræðra vor.