Það fór skjálfti um mig í morgun þegar ég opnaði póstinn minn. Það er nokkuð sérstakt að fá fréttir af skjálfta á Íslandi alla leið frá Dubai þar sem vinnufélagar okkar voru að athuga hvort allt væri í lagi. Ég rauk auðvitað beint á mbl, bölvandi TATA Indicom fyrir netleysið heima í gærkveldi.
Ég geri fastlega ráð fyrir því að allir séu heilir á húfi, fyrir utan það að vera smá skelkaðir yfir móður náttúru sem minnir okkur enn einu sinni á það hvað við ráðum litlu, og ráðum lítið við hana þegar hún er í ham. Engin dauðsföll voru tilkynnt á mbl, og enginn hringdi í mig frá Íslandi með sorgarfréttir svo ég tel vini og ættingja í góðum höndum.
Þið eruð örugglega búin að sjá þetta allt á undan mér, en þessi upptaka var skemmtileg: Hrafnaþing
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli