Til hamingju kæru landsmenn með lýðveldisdaginn okkar og þið fenguð meir að segja ísbjörn að gjöf frá Grænlendingum - hvað ætlið þið að gefa Grænlendingum í staðinn? Kannski sjálfstæði frá Dönum eða ef til vill uppstoppaðan ísbjörn sem var að flýja kulda og vosbúð á klakaeyjunni.
17. júní stemningin er með minnsta móti í Hyderabad og því tóku feðgarnir sig til í morgun að lita á blað íslenska fánann í allri sinni dýrð og kyrja lýðveldissöngva....„ástkæra ættjörð“ og hið sígilda „hæ hó jibbí jeiiii það er kominn sautjándi júní“. Nú bíðum við feðgarnir spenntir að sjá hvort Ella komi fram í fjallkonubúningnum og segi nokkur velvalin orð í tilefni dagsins.
Mamatha barnfóstran okkar bakaði eplaköku fyrir okkur í gær til þess að legga sitt á vogarskálarnir á þessum hátíðisdegi, við sáum sóma okkar að gefa henni frí á lýðveldisdeginum. Surya bílstjórinn okkar fékk ekki frí þar sem dagskráin var þéttskipuð fyrir daginn. Hann hafði reyndar ekki hugmynd um mikilvægi dagsins þannig að ég tilkynnti honum gleðitíðindin með þjóðarstolti og ættjaðrarást: “Surya - did you know today is our independence day“ - Surya svarar með glotti: “okey, do you feel happy?“ Konni svarar: “yes, very happy today - lets got to parade“. Þar með lauk þeim samskiptum.
Dagskráin var sem fyrr segir þéttskipuð í tilefni dagsins og lönguákveðin og samþykkt til að uppfylla 17. júní stemninguna í Hyderabad. Við vorum á leið í SNOW WORLD....hvorki meira né minna og það í annað skiptið, fyrsta atrenna endaði án inngöngu í SNOW WORLD þar sem 10.000 Indverjar voru í biðröð en nú var nánast enginn enda bara þriðjudagur í þeirra augum.
SNOW WORLD eða Snjóheimar eins og það útleggst á lýðveldismálinu er stórt hús fullt af gervisnjó, skítakulda, snjóþotum og trítilóðum Indverjum að upplifa í fyrsta skipti hitastig undir 25 gráðum. Í stuttu máli var þetta eins og labba inn í stóra frystigeymslu í sláturhúsi og allir í ofstórum ljótum appelsínugulum og bláum úlpum. En stemningin var óviðjafnanleg, snjóþotuhringekja, snjóhús úr plasti, skítug rennibraut og allt saman innvafið með glæsilegu bláu veggfóðri á veggjum og hálf gulum gervisnjó . Mikael var nú ekki að rifna úr spenningi - vildi ekkert með þetta hafa og var nú nógu erfitt fyrir að klæða drenginn í sokka, stígvél, úlpu og vettlinga. Indverjarnir voru í essinu sínu, ég giska að það hafi verið svona - 10 gráður í geymslunni.
Eftir fjóra og hálfa mínútu fengum við nóg af þessum skemmtilega hallærislega indverska ævintýraheimi sem engu að síður var drepfyndin og ekki til þess að missa af. Hitastigið var aðeins of mikill raunveruleiki.
Til að jafna sig á misþrifalegum indverskum skemmtigörðum og indversku áreiti er ávallt besta meðalið að ná aftur innra jafnvægi með því að skella sér í mat á fimm stjörnu hóteli, í dag var sá dagur...þó að áreitið hefði verið með minnsta móti enda bara þriðjudagur.
...Næst koma myndir af herlegheitunum.
Konni og co.
þriðjudagur, 17. júní 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli