Það er verkfall hjá bílstjórum í Hyderabad í dag, en eigendur bíla og langferðabifreiða eru að mótmæla nýjum 12.5% skatti sem stjórnvöld ætla að leggja á 'Tour Operators' Sjá frétt.
Þetta þýðir það að við erum föst heima í dag og erum hálf lömuð eitthvað. Ég hringdi á leigubíl í morgun og var tjáð að ég gæti fengið bíl á eigin ábyrgð en sögur fóru af því að menn ætluðu að ráðast á verkfallsbrjóta hér og þar í borginni. Stuttu síðar hringdi bílaleigan mín og tjáði mér að á amk. tveimur stöðum í borginni væri múgæsingur þar sem ráðist var á leigubíla og fleiri, rúður brotnar og bílarnir skemmdir.
Það er sem sagt hiti í hyderaböddum í dag.
Mér datt í hug að fara með ricksjaw í vinnuna en miðað við að það tók okkur rúmlega klukkutíma að komast heim á bílnum í gær þá lagði ég ekki í það. Auk þess hljómaði ekkert spennandi að lenda í einhverjum látum á opnu þríhjóli.
Á morgun hafa ökumenn og eigendur þríhjólanna, eða auto-ricksjaws tilkynnt að þeir ætli í verkfall til að fá fram hækkun á lágmarksgjaldi. Þeir krefjast hækkun úr 9 í 17 rupies á kílómeter. Það verður því rólegt á götunum á morgun, þar sem það eru um 60.000 þríhjól í borginni. Þetta mun hins vegar valda vandræðum alls staðar í borginni þar sem þetta er aðal ferðamátinn, og er notaður af sama magni og lestarnar í evrópskum borgum.
Elín Elísabet talar frá Hyderabad
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ hæ
Spurning hvenær verkfallinu lýkur og þú komist í vinnuna Ella mín.
Bjössi sendi link á myndir frá þér. Verð að segja að þú ert glæsileg í sari :)
kv Gunna
Það bendir ekkert til þess að ég sé á leið í vinnuna á næstunni, ekki þessa vikuna amk. Kannski í næstu viku. Annars er þetta indland, það gæti tekið nokkrar vikur að stimpla samninginn eftir að hann næst. Ef hann næst. Ég er mjög bjartsýn.
Ella
Hæ hæ, þú verður semsagt að vinna heima næstu dagana en vonandi leysist þetta fljótlaega sem getur þýtt viku hjá Indverjum.
Kveðja mamma.
Skrifa ummæli