mánudagur, 16. júní 2008

Indversk 'au-pair' í boði

Mikael á litla vinkonu ská hinummegin við götuna sem heitir Nalini. Hún er ofsalega sæt lítil stelpa, tveggja ára rúmlega en töluvert minni en Mikael. Mamatha talaði alltaf um hana sem stelpan með litla andlitið. Nalini kemur nú stundum í heimsókn á dagin og þau Mikael leika í herberginu hans með fóstrunum sínum. Frekar sætt.

Á laugardagsmorguninn bankaði fóstran hennar Nalini upp á hjá mér með erindi. Systir hennar, 33 ára, ógift og líka fóstra vill gjarnan flytja með okkur heim til íslands og vera fóstran hans Mikaels. Ég veit ekki hvort þetta henti okkur en þetta er alls ekki vitlaus hugmynd, sérstaklega þegar hugsað er til vandræða við að fá leikskólaplass.

Ég held að þetta sé líka snilldarlausn fyrir fólk sem á 2-3 börn og foreldrarnir eru báðir útivinnandi. Fóstran er alltaf heima og tilbúin með eitthvað jummí handa börnunum þegar þau koma heim og Indverskar konur eru með alveg sérstaka þjónustulund. Svo ekki sé talað um að það sé hægt að hafa litlu grísina heima amk. þangað til þeir eru 2ja ára. Þið þirftuð að borga henni eitthvað, hún myndi ekki biðja um mikið en betra væri nú að borga henni lágmark 30-40 þúsund kall auk fæði, húsnæði (hún myndi búa hjá þér) og svo auðvitað flug frá og til Indlands. Hún er einfaldlega að leita sér að betra lífi og vill finna sér eiginmann utan Indlands.

Áhugasamir sendi okkur póst;)

Engin ummæli: