laugardagur, 21. júní 2008

Netrusl og indverskar hárgreiðslustofur

Jibbíí...internetið virkar - vona að það haldi út í klukkutíma eða tvo...liggur við að ég blási upp blöðrur og setji köku í ofninn í hvert skiptið sem netið virkar af einhverju viti, ég þyrfti örugglega ekki oft að blása upp blöðrur og henda í köku.
Indverskt internet getur gert hvern mann geðveikan. Svona eins og íslenskt veðurfar. Ef netið virkar einn daginn þá getur þú bókað að það virki ekki næsta dag - eða það virkar í þrjá tíma og dettur svo út næstu 8 klukkutímana. Svo kemur einhver að laga netið eftir dúk og disk og þá virkar það fínt í klukkutíma eða hálfan dag - maður veit aldrei. Nú virkar netið bara hjá nágrannanum til dæmis....eins gott að hann er með þráðlaust net. Ef netið virkar þá fer rafmagnið af þannig að best að drífa þennan pistil út í algeiminn...ef svo vildi til að einhver nennti yfirhöfuð að lesa þetta. Nú veit ég alla vega hvernig fráhvarfseinkennin af netleysi eru...

En að allt öðru, nú hef ég afrekað að fara tvisvar í klippingu á Indlandi og Ella hefur líka klippt mig tvisvar á indverskri grundu með þokkalegum árangri eða bara fínum í samanburði við hárgreiðslustofurnar - það var líka frítt.
Í fyrra skiptið þegar ég fór á hárgreiðslustofu hér í bæ þá fékk ég meir að segja nudd á eftir - kom reyndar hálfvankaður úr þeirri meðferð. Um daginn skellti ég mér aftur í klippingu og nú á nýja glæsilega stofu - Ella hefur nefnilega gefist upp á að klippa mig.

Það er ekki mikið vesen að fara í klippingu hérna - ekkert að panta tíma. Ég skutlaði mér í rakarastólinn og rakarinn spurði einfaldlega hversu margar tommur hann ætti að klippa - eftir smá umhugsunarfrest ákvað ég að taka um eina og hálfa tommu (3.81cm). Hér er ekki verið að spá í nýjustu straumum og stefnum í hártísku eða verið að fletta glanstímaritum - þetta snýst eftir sem áður um hversu margar tommur skal klippa. Ég bað reyndar klipparann um nota skæri þegar hann fór að munda rakvélina svona til að spara tíma. Ekkert mál, hann sótti skærin sem eru svona svipuð skæri og ég á heima hjá mér, allt í besta.
Einni og hálfri tommu síðar fékk ég fína vatnsgreiðslu og smá Tinna-lúkk. Ég náði að væla út smá gel í hárið til þess að losa mig við Tinna-lúkkið...sko barasta fínt....ég veðjaði á rétta tommu lengd. Allt ferlið tók 14 mínútur - frá því ég labbaði inn og þar til ég labbaði út nýklipptur og það fyrir aðeins 390 krónur íslenskar. Toppið það!

Ég hef það á tilfinningunni (af fenginni reynslu) að rafmagnið sé fljótlega að fara yfirgefa mig þannig....bless og bæ.

Konni

Engin ummæli: