laugardagur, 7. júní 2008

EM 2008 eða ameríska landsmótið í stafsetningu

Nú er klukkan hálf níu og aðeins klukkutími í að opnunarleikur Evrópukeppni landsliða í fótbolta hefjist - EM 2008.
Mæli ekki beint með því að reyna að horfa á þetta mót á asísku tímabelti....flestir leikjanna eru á dagskrá á miðnætti - örfáir leikir sýndir klukkan hálf tíu. En maður verður víst að fórna sér í þetta verkefni, ætli ég reyni ekki að fá Mamöthu barnfóstruna til að mæta snemma út júnímánuð þar sem maður er jú á fótboltanæturvaktinni þennan mánuðinn fyrir fjölskylduna.

Nú er sem sagt allt tilbúið, Mikael sofnaður, Ella að poppa og ESPN íþróttastöðin læst á fjarstýringunni...sem ég þurfti að kaupa auklega fyrir 40 Rs. eða 79 krónur íslenskar fyrir einn mánuð.
Nú rétt fyrir leik er verið að sýna á ESPN beint frá ameríska landsmótinu í stafsetningu...það verður nú að viðurkennast að sú keppni er æsispennandi og höllin troðfull. Eftir að ein 11 ára stelpa datt út úr keppni þá eru eftir tveir 12 ára strákar í úrslitum, annar strákurinn lítur út eins og flest allir venjulegir 12 ára strákar en hinn keppandinn lítur út eins og að hann hafi aldrei gert annað en að stafsetja orð, klæddur eins og sextugur prófessor og í þokkabót er hann með yfirvaraskegg....magnað og alveg dagsatt. Eftir að hafa horft á stafsetningakeppnina í nokkrar mínútur er nokkuð ljóst að keppendur eru ekki beint venujulegir krakkar - ég einfaldlega gæti ekki stafsett eitt orð af þessu orðababli sem er í boði, ég er reyndar viss um að enginn annar en þessir (ó)ofvitar gætu stafsett þessa vitleysu.
Þetta er nánsta eins og að vera fluga á vegg í einhverjum sértrúarsöfnuði - greyið krakkarnir hafa aldrei átt stafsetningalausa æsku. En þetta er æsispennandi engu að síður og krakkinn með yfirvaraskeggið virðist ætla að sigra keppnina, slíkt er stafsetningaöryggið hans. Andstæðingur hans ruggar sér ótt og títt fram og aftur á meðan hann bíður eftir sínu orðaskvabli.
Nú dregur til tíðinda...yfirvaraskeggjadrengurinn er að klikka á einum staf af 10 stöfum í orði - andstæðingur hans á nú leik á borði, ef hann stafsetur rétt þá er hann Stafsetningameistari Ameríku......það má heyra saumnál detta.....og hann stafsetur lýtalaust, hann vinnur í bráðabana - ættinni til mikillar gleði. Ætli hann fái stafasúpu í verðlaun?
Þetta var svipuð tilfinning eins og að horfa á vítaspyrnukeppni í úrslitaleik HM í fótbolta....þvílík spenna og ég sem veðjaði á yfirvaraskeggjadrenginn. Jæja nú er klukkan níu og aðeins hálftími í leik...vona bara að leikurinn verði jafnspennandi og stafsetningameistaramótið.

Konni

Engin ummæli: