þriðjudagur, 10. júní 2008

Monsoon EM spenna

EM í fótbolta er komið á fullt og spennan í hámarki....ég varla nenni að vaka yfir þessu, en ég er ekki búinn að gefast upp.
Á sama tíma er monsoon (regn) tímabilið að skella á, hitastigið hefur dottið í 32-34 gráður...burrrrr. Það ringdi hressilega seinni partinn í gær en þó aðeins í hálftíma og okkur fegðunum til mikillar undrunar fór rafmagnið af hverfinu.......átti reyndar von á þessu - það þarf ekki nema smá bleytu í fimm mínútur að þá fer rafmagnið af borginni. Eins gott að í okkar hverfi er vararafstöð til að útvega okkur rafmagn - en því miður þá virkar það seint og illa.
Sem sagt í gærkvöldi varð rafmagnslaust og svarta myrkur í húsinu - tók smá tíma að finna Mikael í þessu myrkri og borðuðum við hádegismatinn aftur í kvöldmat við huggulegt kertaljós. Þetta minnti mig á stóra-rafmagnsleysið sem varð í Reykjavík þegar ég var srika 13-14 ára. Ekkert óvenjulegt fyrir Ellu þar sem hún er víst vön því að upplifa almennt rafmagnsleysi frá æskuárum sínum á Akureyri.
Strax eftir kvöldmat kom rafmagnið aftur á og ég gat farið að undirbúa mig fyrir EM í fótbolta í sjónvarpinu. Um miðbik fyrri hálfleiks ákvað ég að poppa þar sem lífsmarkið í leiknum var frekar takmarkað (og bjórinn búinn). Viti menn poppið mitt var rétt byrjað smella....þegar auðvitað rafmagnið fór aftur. Nú var ég einn og yfirgefinn með hálfeldað popp og ekkert EM í fótbolta...leið eins og steinöld hefði bankað upp á og ég í mínum torfkofa að furða mig á heitum maísbaunum í pappírspoka.
Með þolinmæði minni taldi ég rétt að gefa vararafstöðinni smá séns á að komast í gagnið....beið bara í myrkrinu og maulaði hrátt popp. Huggaði mig við þá staðreynd að leikurinn hefði nú ekki verið beint augnakonfekt og enginn úrslitaleikur. Korteri síðar...bingó....rafmagnið kom aftur...eða hvað! Jú það kom rafmagn en bara á fiskabúrið...ekki meira spenna í boði frá rafstöðinni. Hálfeldaða poppið var búið og ekki spennandi að horfa á fiskabúrið til lengdar. Það var alla vega nóg rafmagn í þeirra heimi....vona bara að þeir hætti að éta hvern annan.

Konni

Engin ummæli: