föstudagur, 6. júní 2008

Verkfallsalda í Hyderabad

Mörg IT og BPO (Business Process Outsourcing) fyrirtæki hafa ákveðið að hafa frí í dag sökum áframhaldandi verkfalls bílstjóra. Mörg þessi fyrirtæki bjóða upp á ferðir í vinnuna og aðeins 700 af 1600 starfsmönnum Google skiluðu sér alla leið í gær. Sum fyrirtæki létu starfsmenn tékka sig inn á næsta hótel í gærkveldi svo þeir skiluðu sér í vinnuna í dag, önnur ákváðu að loka.

Bílstjórar og eigiendur auto-riksjaw (þríhjóla) eru í verkfalli í dag.

CPI (communist party of India) hvetur alla til verkfalls í dag til þess að mótmæla ört hækkandi verði á bensín, dísel og gasi.

'SBI officers' eru í verkfalli til að þrýsta á gamlar kröfur, hljómar eins og þeir hafi bara ákveðið að taka þátt í gleðinni. Afþví bara.

Það sem sagt hitnar enn í kolunum og við sitjum heima og kvörtum ekki á meðan ég get unnið og við höfum mat í ísskápnum.

Engin ummæli: