þriðjudagur, 24. júní 2008

Sokkar og Chutneys

Eins og flestir foreldrar þekkja þá getur verið miserfitt að koma fjölskyldunni á fætur á morgnanna og erfiðari hlutinn af 'mis' átti við um þennan morgun.

Litla djásninu okkar fer mikið fram í að tala þessa dagana og er farinn að mynda setningar eins og 'má ég sitja' sem er í miklu uppáhaldi. Sokkar eru líka í miklu uppáhaldi þessa dagana og í morgun greip hann sokkapar og sýndi mér og sagði 'sokkar'. Hann vildi hins vegar ekki fara í sokkana, hann vildi ekki fara í skó heldur. Mamma mátti ekki fara í sokkana og ekki vildi hann borða. Það getur stundum verið erfitt að geta í eyðurnar og í morgun varð ég alveg hugmyndalaus. Eðlilega kannski var Mikael ansi pirraður á mömmu sinni að skilja ekki hvað hann vildi en ég náði að hressa hann við með því að hleypa honum út til Surya. Það bjargar oft deginum að fá að leika aðeins í bílnum.

Þetta ásamt því að vakna með kviðverk, gasleysi (þ.a.l. engan graut) og mjólkurleysi þá ákvað ég að ég ætti inni smá 'treat' og kom við á Chutneys að fá mér Dosa. Chutneys er frábær staður, mjög indverskur en snyrtilegur, fljótlegur og góður. Þeir búa til besta Dosa sem ég hef smakkað og bjóða upp á 4 mismunandi tegundir af chutney með sem er hrein snilld.

Þetta var svona svipuð stemmning eins og að fara á kaffitár heima sem ég gerði stundum áður en ég fór í vinnuna. Svo eftir 7 mánuði er ég loksins búin að finna mitt 'kaffitár' í Hyderabad. Eins gott að nýta það vel næstu tvo mánuði:)
Mesta snilldin var að þetta tók aðeins korter og kostaði 87 rupies eða um 170 Ikr. Ein Dosa og einn líter af vatni til að koma deginum í gang.

Heilsist vel
Ella

Engin ummæli: