Þeir sem þekkja mig kannast við ástæðuna fyrir hefðum Surya á morgnanna. Sumum að minnsta kosti.
Þegar ég kem út á morgnanna bíður Surya með bílinn tilbúinn, ég heilsa og hann segir hi. Hann hjálpar mér með töskuna og nestið inn í bílinn eins og sannur bílstjóri (það er erfitt að venja bílstjóra af þessu, enda eru þeir vanir að veita góða þjónustu) og sest sjálfur inn.
Eftir að hann sest inn þá segir hann 'Good morning madam' með bland af kátínu, stolti og virðingu. Þetta markar upphaf vinnudagsins hjá okkur Surya.
Ef ég er ekki með kaffibollann minn með mér af heimalöguðu nescafé þá spyr hann þegar við keyrum út úr whisper valley hvort ég vilji stoppa og sækja kaffi.
Þegar við komum niður í vinnu stoppar hann fyrir framan lyftuna í kjallaranum og opnar hurðina á meðan ég safna saman draslinu (talvan, maturinn sem Mamatha eldaði í gær og kaffibollinn). Hann fer vel yfir bílinn og sér til að ekkert gleymist, spyr til öryggis hvort ég sé með símann minn.
Þegar ég kem niður í lok vinniudags bíður Surya eftir mér, iðulega sofandi í bílnum. Þegar ég sest inn í bílinn þá segir hann með sama virðulega tón, eylítið þreytulegri en um morguninn: 'good afternoon madam'. Ef kaffibollinn skilaði sér ekki niður af skrifstofunni spyr hann hvar kaffibollinn sé.
Ég á það nefnilefga til að gleyma hlutunum, og þetta er hann Surya búinn að uppgötva undanfarna mánuði. Það er ekki slæmt að hafa einhver sem passar svona vel uppá mann.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ Ella, mikið væri ég nú til í eitt stykki gleymskuvörð. Hann hefði nóg að gera í að finna lykla og síma og passa að ég gleymi ekki börnunum í ævintýralandi. Voru þið ekki annars að horfa á Eurovision? Áfram Ísland!
Heyrumst fljótt, Vala
Já mér verður það betur ljóst með hverjum deginum að ég verð að flytja þríeykið með mér heim. Verst að það eru engir 'domestic help quarters' í íbúðum í vesturbænum.
Eurovision var í nótt hjá okkur, en það er svo alveg spurning hvort við vökum ekki yfir úrslitunum!
Alvöru eurovisionpartý... :)
Skrifa ummæli