Ég á í svolitlum vandræðum með mig, því ég verð reið, en hef samúð með þeim um leið. Kannski verð ég bara reið við heiminn, við Indland við allt sem veldur því að börn þurfa að alast upp við þessar aðstæður.
Ég hitti þessa stelpu í Mumbai. Hún sagðist vera 30, er frekar 13 að mínu viti. Ég bað bílstjórann að spyrja hana hvort hún ætti barnið sem mér fannst ólíklegt miðað við að hún er um 13 og barnið um 6. Hann brosti og sagði nei hún á það ekki, þetta er leigt barn. Þetta segir hann brosandi.
Ég gaf henni 10 rupies og hálfan líter af vatni því barnið lá hálf meðvitundarlaust á henni í hitanum. Ég horfði á eftir henni, hún drakk helminginn og gaf svo barninu. Svo ég laumaði að henni öðrum hálfum líter.
Ég hef lengi hugsað um að hafa með mér hrísgrjón í bílnum, gefa betlurunum frekar hrísgrjón og vatn. Sumir eru að vinna fyrir mafíur sem hirða mest allan peninginn. Ég hef heyrt ljótar sögur af mafíum sem ræna börnum, misþyrma þeim svo þau þéni betur á götunum.
Ég las bókina 'Viltu vinna milljarð' áður en ég kom út, hún lýsir þessu meðal annars. Ég mæli með henni, hún er fljótlesin, spennandi og veitir góða innsýn í götulífið á Indlandi. Mér verður oft hugsað um þessa bók hérna.
ABC hjálparstarf er meðal margra annara verkefna að hjálpa götubörnum á Indlandi. Hjá ABC getur þú fyrir 2-3000 íslenskar krónur séð barni fyrir mat og skólagöngu og með því gefið því möguleika á betra lífi. Einn skólinn er hér í Andhra Pradesh: Heimili Litlu Ljósanna
3 ummæli:
Já ég las líka bókina Viltu vinna milljarð á meðan ég lá í vellystingum með kokteil í Havana. Þá hugsaði ég sko hvað gæðunum er misskipt í þessum heimi! Að misþyrma börnum til að gera þau að "söluvænni" betlurum er sárara en tárum taki og ótrúlegt hvað mannskepnan getur verið grimm. Mér heyrist þú vera orðin nokkuð þreytt á Indverjunum?
:)
Ég held að það sé eðlilegt í svona samfélagi að rokka upp og niður. Stundum finnst manni allt frábær, og stundum er maður ofsalega þreyttur á öllu. Þetta umhverfi er mjög hrissingslegt að mörgu leyti en svo að mörgu leyti þægilegra en heima:)
Akkúrat eins og er er ég sennilega þarna á milli, hitinn er að fara með mig, 39°C í dag:) En það er ekki hægt að kvarta undan því að rölta í 2 mínútur í sund í hitanum.
Genial post and this post helped me alot in my college assignement. Thank you on your information.
Skrifa ummæli