miðvikudagur, 14. maí 2008

Menningarsjokk

Ég held ég hafi fengið mitt fyrsta alvöru menningarsjokk um helgina. Fyrst þegar ég kom til Indlands þá var jú smá sjokk að sjá allan skítinn, ruslið, fátæktina og allt það. Þetta eru hlutir sem maður venst. Svo rekur maður sig stöðugt á öðruvísi vinnuaðferðir, viðhorf og venjur í vinnunni en ég hafði nú unnið með Indverjum í nokkra mánuði áður en ég kom út svo ég var viðbúin.

Ég reyndar missti smá andlitið í gær. Ég hafði beðið hópstjórann um að skipuleggja nokkra fundi um ákveðin málefni. Eitt málefni er leyst af einum forritara og einum testara en fundurinn átti að vera með tveimur aðilum heima til að skilja betur viðfangsefnið. Ég skaust inn á einn fundinn í gær, inni sátu þau fjögur. Ég spurði hver ætlaði að leysa viðkomandi mál. Einn rétti upp höndina. Ég spurði hvort það gæti verið smá sóun á tíma að allir sætu alla fundina? Jú, kannski fannst þeim það.

Föstudagskvöldið einkenndist sennilega frekar af menningarþreytu. Maður verður stundum þreittur á því hve fólk er ofsalega stíft og fylgir alls kyns reglum vel og er lítið til í að stíga út fyrir rammann.

Á sunnudaginn lenti ég í einkennilegum aðstæðum. Ég hitti Whisper Valley nefndina eiginlega fyrir tilviljun en sú nefnd sér um reksturinn á Whisper Valley og samanstendur af fólki um fertugt-fimtugt sem eiga húsnæði í dalnum. Ég var ekki sátt við ákveðnar reglur sem þau höfðu sett og var að fara fram á að vita í hvað peningarnir sem við borgum í viðhaldi á mánuði fara í (10.000 ISK á mánuði fyrir 85 hús gera 850.000.- ISK á mánuði).
Þau sáu rautt, hvít, ung, KONA og LEIGJANDI í dalnum vogaði sér í fyrsta lagi að setja út á reglur og í öðru lagi að biðja um upplýsingar. Eins og ég hefði einhvern rétt á því? Ég hef aldrei áður lent í öðru eins viðmóti sem ég fékk þarna. Þetta voru alvöru yfirstéttar Indverjar að tala, fólk sem lítur á sig töluivert merkilegra en annað fólk. Ég gafst upp þegar ég var farið að titra af reiði og fór heim.

Ég er farin að skilja betur og betur afhverju Indverjar sem ég hef kynnst eru svo langt á eftir Íslendingum þegar kemur að sjálfstæði í vinnu og fylgja eftir hugmyndum. Þeim er ekki gefið neitt frelsi til þess að æða á eftir sínum hugmyndum. Auðvitað eru hugmyndir ekki alltaf góðar, en án þess að fá að útfæra nokkrar slæmar hugmyndir þá er erfitt að koma úpp með lausn á snilldarhugmynd. Vondar hugmyndir geta verið eins og að sulla mjólk yfir símann mömmu og sjá hvað gerist, sleppa sér lausum í partýi (sem er reyndar góð hugmynd), stela jarðaberjum í næsta garði til að búa til jarðaberja-moldarstöppu til að maka á gluggann hjá nágrannanum, mótmæla reglum sem eru ákveðnum hópi hliðhollar (með vel studdum rökum að sjálfsögðu) og svo fram eftir götunum.

Indverjar státa sig stöðugt af skólakerfinu hér, að það sé með þ ví besta í heiminum. Lísa er kennari frá bandaríkjunum sem fór inn í einn almenningsskólann hérna í kynningu en hún er að hugsa um að kenna jafnvel eitthvað hérna. Í hverjum bekk voru 80 krakkar og kennarinn stóð uppi á töflu og skrifaði sama orðið aftur og aftur. Krakkarnir skrifuðu sama orð aftur og aftur. Enginn skildi hvað orðið þýddi.

Við fórum í brunch á sunnudaginn með bruggstjóranum í Budwiser verksmiðjunni. Verksmiðjan er í um klukkutímakeyrslu frá borginni. Hann segir að nánast á hverjum degi keyri hann fram hjá dauðum manni á veginum, jafnvel í blóðpolli en enginn stoppar.

Það er kominn tími til þess að fara úr borginni yfir helgi. Við ætlum að skoða menningiuna í Mumbai og vonumst til þess að þar séu amk. gangstéttar til að labba eftir. Það væri stór plús ef það væri hægt að labba á milli búða og jafnvel stoppa við og fá sér kaffi.

Annars er ég ánægð með að búa á Indlandi. En það er kominn tími á smá frí.

6 ummæli:

Lína og Alex: sagði...

Mikið hafa þeir annars gott af því að hafa þig í vinnu þarna Indverjarnir. Hafið það gott í ferðalaginu...óskandi að þið finnið gott kaffihús eða tvö. Kveðja frá Vancouver "slash" Hong Kong !
Lína

Ella sagði...

Ertu á leið til HongKong? Ég sé ekki betur en að Hybrabrabrad sé í leiðinni! Dinglaðu endilega hjá okkur... við tækifæri.

Unknown sagði...

Njótiði frísins Ella mín.
Við sátum annars úti áðan að borða hádegismat í sólinni og vorum einmitt að ræða þig og að við þyrftum að hafa þrusupartý þegar þú kemur heim, svona ala Calidris en ekki Sonata :)

Unknown sagði...

Alveg væri ég til í að koma í heimsókn ef ég gæti. En nei ekki á leið til Hong Kong, er bara farin að kalla borgina "Hong Kong" enda allt löðrandi í kínverjum og svo er góður slatti af indverjum og írönum og svo svona einn og einn kanadamaður á stangli hér og þar ;)
Kram/L

Ella sagði...

Ég tek ykkur á orðinu með Calidris-partý þegar ég kem heim!
Það verður ekkert liðið nema bull og vitleysa í því partýi skal ég segja þér;)

Unknown sagði...

hvenær á maður að vera óvart á ráfi um Öskjuhlíðina?