Hann Bush hefur verið duglegur að hrista upp í Indverskum pólitíkusum undanfarið og það er svolítið gaman að sitja hérna megin á hnettinum og fylgjast með. Ekki það að það er alltaf gaman þegar Bush er að fara í taugarnar á einhverjum. Ein útskýring hans á auknum skorti á matvöru í heiminum er sú að indverjar og kínverjar eru farnir að éta meira. Þetta er alveg rétt hjá honum, ört stækkandi millistétt í þessum löndum mun hafa áhrif á komandi árum í öllum heiminum. Millistétt var hreinlega ekki til hérna áður fyrr, fólk fæddist í ákveðna stétt og lifði í ákveðinni stétt. Þetta hefur breyst mikið með IT og BPO (business process outsourcing) sprengju á undanförnum árum og það góða við þetta er að fólk getur unnið sig upp í þjóðfélaginu. Svo ekki sé minnst á að konur fá aukið sjálfstæði með auknu fjárhagslegu sjálfstæði.
Bush greyjið sagði auðvitað líka að það að vanþróuðu löndin væru að þróast væri gott mál, fólk fengi fleiri tækifæri og lifði betra lífi. Það var minnst á það mjög aftarlega í greininni.
Hins vegar kom einnig fram að þrátt fyrir að neysla hins almenna indverja hefur aukist þá er hún langt (og þá erum við að tala jafnvel tífallt) undir meðalneyslu hins almenna ameríkana. Þannig að ég skil svosem að Indverjar séu svolítið sárir yfir þessu, Bush er best að skoða sinn heimabæ áður en hann fer að leita annað. Ég spurði Mohan sem vinnur með mér í gær hvað hann eyðir í mat á mánuði fyrir fjölskylduna (sem er jafnstór og mín) svarið var 2500 rupies, hann borðar kjúkling einu sinni í viku annars er uppistaðan í fæðunni hrísgrjón, dahl og grænmeti. Ég eyði nálægt 30.000 rupies á mat á mánuði (60.000 ISK), uppistaðan hjá mér er sú sama en þar fyrir utan er ostur, skinka, kjöt, fiskur, ávaxtasafar, cerios (sem kostar nb. 800 IKR lítill pakki) og fleira.
Indverjar eru stórir framleiðendur á hrísgrjónum, korni, grænmeti og ávöxtum. Nú þegar er útflutningsbann á hrísgrjónum öðrum en basmati hrísgrjónum frá Indlandi til þess að sjá til þess að þjóðin fái fyrst að borða og svo restin af heiminum. Vesturlöndin treysta að mörgu leiti á þennan heimshluta þegar kemur að ýmsu hráefni svo það er smá áhyggjuefni hvernig þróunin verður á næstu árum.
Nú í fyrradag var önnur grein, jú nú var Bush að argast yfir olíubyrgðum, og nú vill Bush meina að olíuskortur í heiminum sé líka okkur að kenna eins og þetta var orðað;)
Það er hjólað í vinnuna átak á Íslandi, er ekki spurning um að taka fram hjólið og spara nokkra eldsneytisdropa í leiðinni? Calidris stendur nú í 9. sæti af 56 fyrirtækjum og stefnir upp á við.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Eftir að hafa búið í Canada og hafa heimsótt Bandaríkin nokkrum sinnum, er ég ekki alveg sammála Forsetanum frekar en venjulega. Sóunin í þessum löndum álít ég að sé mörgum sinnum meiri en í Indlandi. Má þar nefna gríðar stóra matarskammta, sem ég vil meina, að aðeins stærstu menn ná að klára svo ekki sé minnst á bensínhákana þeirra. Eins og svo oft áður væri nær fyrir Forsetann að líta sér nær áður en hann fer að kenna einhverjum öðrum þjóðum um bruðl en það er víst ekki hans stíll.
Blessuð vertu, og takk fyrir procrastination tækifæri dagsins í vinnunni. Virkilega gaman að þessari lesningu - mig dauðlangar í heimsókn! Kíktu svo hingað ef þig langar í "alvöru" hita... :)
Skrifa ummæli