föstudagur, 9. maí 2008

Tími fyrir Teiti

Það er parýkvöld í kvöld. Nú er ég gríðarlega spennt að sjá hvernig kvöldið fer, ég hef aldrei haldið partý fyrir Indverja áður, þeir fá sjokk... borðað klukkan hálf sjö, á matseðlinum eru fylltar kjúklingabringur með kóríander-kartöflumús og plokkara ásamt Ítölsku viðbiti. Konni er búinn að búa til myndasjóv frá íslandi og taka saman íslenska tónlist (Sonia fær sjokk en hennar uppáhalds er Brian Adams og Enriqe Iglesias (kann ekki einu sinni að stafa þetta)) og actionary bíður notkunar ásamt stóra major og litla major ef það verður stemmning. Mest spennt er ég líka að sjá hversu langt kvöldið endist. Sumir eiga að vera komnir heim klukkan tíu....

Ég verð stríðnis-kúnninn í kvöld... púkinn í mér er í stuði. Ég vona bara að Sonata fái ekki upphringingar frá brjáluðum foreldrum 25 ára yngismeyja því þær voru í partý fram að miðnætti.

5 ummæli:

Unknown sagði...

Stóri Major og Litli Major, þú mannst að það er bannað að svindla. Fólk gæti farið í fýlu og gengið út !

Unknown sagði...

Það verður gaman að heyra hvernig þér tekst að rífa upp Calidris stemningu í partýinu ;) Já matur klukkan hálf sjö er ekki eitthvað sem er sjálfsagt á þessum slóðum.
Er partýið heima hjá ykkur??
Partýkveðjur :)
Gunna

MrHappy sagði...

Þetta verður ekki almennilegt partý nema amk helmingurinn muni minna en helming af því sem gerðist, og að einhver fari úr að ofan :)

Knús
Bergþór

Ella sagði...

úffff
Í fljótu máli þá tókst engan veginn að koma upp Calidrisstemmningu í partýinu. Ég þarf að halda annað partý fljótlega fyrir 'útlendingana' til þess að gleyma þessarri reynslu.
Þau hinsvegar skemmtu sér gríðarlega vel að eigin sögn, við spiluðum actionary.
Eins og einn sagði, "þetta var frábært, Ella, við höfum aldrei áður farið í svona partý, þar sem það er svona matur sem maður fær sér og labbar svo um, þetta var frábært"
Mér leið eins og þreitt kona í lok langs vinnudags þegar ég fór að sofa.

Unknown sagði...

Hefði viljað vera fluga á vegg í þessu magnaða actionary partýi. :)