Maður venst því í Indlandi að stundum virka hlutirnir ekki. Stundum er svar við því og stundum ekki. Oft er best að eyða ekki tímanum í það að leita svara. Dagarnir myndu fjúka hjá án nokkrrar uppskeru.
Í dag get ég ekki notað msn. Ég veit ekki afhverju. Það eina sem ég veit er að stundum er þetta svona, suma daga viðrar bara ekki til msn spjalls á internetinu.
Kannski sofnaði indverjinn sem heldur msn-portinu opnu? Það kæmi ekki á óvart. Í þessum hita líka.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hang in there champ :-D
Skrifa ummæli