fimmtudagur, 5. júní 2008

Fyrirmyndarleigjendur í boði - með útsýni

Stórkostleg lítil fjölskylda óskar eftir leiguhúsnæði með haustinu, tökum að okkur garðhirðu, sameignarbókhald, viðhald á húsnæði og góðum anda. Höfum góða reynslu af meðhöndlun drykkjurúta, subbulúða og froska. Erum vel til fara, vel menntuð og almennileg í alla staði. Staðföstum greiðslum heitið; net- og hárgreiðslum. Erum með góð meðmæli, frá mömmu.

Við vorum að skoða fasteigna og leigumarkaðinn heima og þorum ekki heim. Beinast liggur við að skrá Konna áfram í skóla og sækja um á háskólagörðunum.

Annars er fasteginavefurinn góð skemmtun á svölu monsoonkvöldi. Lágreistir bárujárnskofar, varla teinréttir í miðbænum á þrjátíu milljónir. Og 14% verðbólga. Hvernig lifir landinn þetta af? Hvernig á ungt fólk (við flokkumst ennþá undir það) að koma undir sig skjóli við þessar aðstæður? Er ekki landflótti í aðsigi? Erum við að horfa á önnur móðuharðindi? Nema í þetta skiptið er móðan ekki sökum öskufalls heldur grátbólginna augna yfir stöðunni á bankareikningnum.

Ella

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þið eruð sem sagt að koma alkomin í ágúst? Það eru góðar fréttir þar sem við bjuggumst ekki við ykkur fyrr en í nóvember!
Ella - verðum við þá saman í karate? Við Svavar erum nefnilega orðin svo fræg að vera komin með gult belti og megum því fara að láta ykkur reyndara fólkið lumbra aðeins á okkur ;o
Kv. Ágústa

Nafnlaus sagði...

ps. ég mæli algjörlega með stúdentagörðunum....sælla minninga

Helga sagði...

Lífið er ekki bara ágætt á Íslandi þegar maður er farin að venjst þvi en auðvitað er dýrtíðin mikil. Ég öfunda ekki ungt fólk að koma sé upp heimili í dag en kannski er það bara svipað og þegar við vorum að byrja. En nú stendur allt til bóta varðandi fasteignir, spáir að minsta kosti 30% lækkum á verði með haustinu. Svo er pláss hjá okkur til að byrja með, allavega á meðan verið er að skoða markaðinn. Lætur okkur vita ef það er eitthvað sem getum aðstoðað.

Kveðja mamma.

Ella sagði...

Takk fyrir það mamma mín, verst ef þú losnar aldrei við okkur;) Við leggjumst uppá ykkur og ættin fer að vorkenna Helgu og Torfa sem sitja uppi með eymingjana.. :)

Líst vel á ykkur Svabba Ágústa! Ég þarf að koma á æfingu með ykkur í haust.

Nafnlaus sagði...

Ég ætla að leigja út íbúðina mína á Álftanesi í haust. Erum að flytja í stærra. Ef þið viljið búa þar. Þriggja herbergja. Bið að heilsa, hugsa oft til ykkar.

Knús, Brynja Þorgeirs

Ella sagði...

Takk fyrir gott boð Brynja, Álftanes hljómar vel, örugglega næstum því eins friðsælt og Hvísldalurinn okkar... :)
Verðum í bandi, hafðu að gott.
Ella