miðvikudagur, 18. júní 2008

Kormákur Dagur Björnsson

Við eiguðumst nýjan frænda í nótt. Hann heitir Kormákur Dagur Björnsson og fæddist í Luxembourg um hálf fimm að sínum tíma.

Við erum að rifna af stolti og þurftum því auðvitað að blogga um þennan merkisatburð. Mig langar helst að dansa og syngja í básnum mínum en það væri hálf vandræðalegt fyrir viðstadda.

Nú eru rétt rúlega 9 vikur þangað til við fáum að líta litlu nýju frændsystkyni okkar þau Guðný Rún dóttur Rósa bró og Kormák Dag Sigguson augum í fyrsta skiptið og ég bara get ekki beðið...

Ég neyðist til að fara til Kína til að stytta mér stundir þangað til. Ó auma líf... :)

Hæ hó jibbí jei það er hamingja á bæ.

3 ummæli:

Sóley sagði...

Hey til hamingju :)

Helga sagði...

Já Ella mín, það getur stundum tekið á að vera langt frá stórfjölskyldunni en sem betur upplifum við eitthvað öðruvísi í staðinn. Það verður svakalega gaman að hittast öll í haust og vona ég að það verði styttra á milli okkar allra, næstu mánuðina þar á eftir og vonandi í framtíðinni.
Kveðja, mamma.

Ella sagði...

Já þú verður þá að nýta tímann vel á Spáni í að sannfæra tengdasoninn um gildi þess að vera nálægt fjölskyldunni. Hann talandi um að fara í skóla til Japan!