föstudagur, 13. júní 2008

Skítakuldi

Það var skítakuldi í Hyderabad í morgun, ég komst að þessu þegar ég fór út. Það var ekki kaldur vindurinn sem læsti sér í skinn og bein, það fór ekki um mig hrollur en afhverju var þá skítakuldi? Jú, Surya var kominn í jakka. Við vorum samt að tala um 25°C í morgun sem nú er komin upp í 28°C. Skítkallt, brrrrr....

3 ummæli:

Unknown sagði...

Varð hugsað til Sudhakar þegar hann kom og lenti í að bíða fyrir utan vinnuna fyrsta daginn í snjókomu og byl. Ef 25° er kallt í Hyderabad, þá skil ég vel að hann náði eiginlega aldrei í sig hita á meðan hann var hérna ;)
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Gunna

Ella sagði...

Já greyjið sudhakar, hann verður alltaf hálf kuldalegur þegar ég minni hann á þetta:)
Knús í vesturhlíðina

Unknown sagði...

Ca. 9° og sól í Vesturhlíð. Dálítill kaldur vindur en verður eflaust skjólsælt og gott hér fyrir utan í hádeginu. :) Hlökkum til að fá þig heim í haust.