laugardagur, 14. júní 2008

Útskriftarveisla í Hvíslaradalnum

Þá er stóra stundin runnin upp, í dag útskrifast ég formlega og opinberlega sem stjórnmálafræðingur úr Háskóla Íslands....eins einkennilegt og það hljómar nú, en dagsatt engu að síður.
Þannig að nú er lag að slá til veislu í kvöld í Hvíslaradalnum...og þér er boðið - mæting upp úr 20 - strax á eftir regnpartýinu. Hlakka til sjá ykkur öll með nýju Hyderabadda-vinum okkar.

Stjórnmálafræðingurinn.

5 ummæli:

Sigga sagði...

Til hamingju með nýja titilinn. Enn ein ástæðan til að skála á Spáni í haust! Góða skemmtun í kvöld.

Sigríður sagði...

Hamingjuóskir úr Kópavoginum - kannski við opnum bara rauðvínsflösku þér til heiðurs í kvöld. Njóttu dagsins.

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju elsku Konni. Við skálum fyrir þér í kvöld.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með áfangann.
Góða skemmtun í útskriftar veislunni í Hvíslaradalnum. Get því miður ekki mætt núna, enda nýbúinn að vera í heimsókn.

Konni, Ella og Mikael Tumi sagði...

Stjórnmálafræðingurinn þakkar kærlega fyrir sig.