miðvikudagur, 4. júní 2008

Heimferð hefst 23. Ágúst

Við erum komin með miða hálfa leiðina heim eða svo langt sem Amsterdam. Við stefnum á að skila okkur alla leið á klakann í lok Ágúst.

Það sem ég mun sakna frá Indlandi:
Að ganga um í pilsi og hlírabol alla daga
Birta frá 6 á morgnanna
Að horfa á umferðina
Litla fjölskyldan okkar, Mamatha, Surya og Lakshmi (og ekki má gleyma Sati Babú)
Maðurinn sem straujar.
Að geta haft Mikael heima
'Útlensku' vinirnir okkar
Dosa
Að geta keypt mango af götusalanum
Papaya
Húsið okkar
Að vera í asíu
Skraddarar
Að eyða sunnudeginum í sundlauginni á Novotel
Kingfisher

Það sem ég mun ekki sakna frá Indlandi:
Mosquito
43°C
Skítur (sem venst reyndar ótrúlega vel)
Henska
Myndaóðir Indverjar
Gamlar AC
Að vera með indverja í maganum
Indversk nettenging
Almenningssalerni
Indversk mjólk

Það sem ég hlakka til á íslandi
Að fara í haustlitaferð í Þórsmörk
Drekka íslenska mjölk
borða kjöt
Eyða tíma með fjölskyldunni
Hitta vini mína
Fara á barinn
Fara í hagkaup (já það er spennó)
Anda að mér ferska loftinu
Karate
Rölta Laugarveginn á laugardegi

Það sem ég hlakka ekki til á íslandi
10°C
Myrkur
Verðlagið
Að þekkja hvert götuhorn
Stress
Kaupa bíl
Finna hús



Annars á ég eftir að sakna Indlands, en allt hefur sinn enda og ný og spennandi verkefni taka við, eins og að kaupa úlpu á alla fjölskylduna.

Ella ísbjarnasérfræðingur

1 ummæli:

Helga sagði...

Mikið skil ég þig Ella! Ég man þegar ég var í þessari stöðu, mér fannst vera svo margt sem ég mundi missa og auðvitað er það alltaf þannig þegar verið er að flytja á milli staða en það kemur alltaf eitthvað annað í staðinn. Það verður yndislegt að fá ykkur heim.
Kveðja mamma.